s. 550-3000
Nautabú L146211 :
Um er að ræða 230ha jörð í góðri umhirðu, með prýðilegu íbúðarhúsi sem hefur hlotið gott viðhald og uppfært að mörgu leyti eftir nútíma kröfum, með 3-fasa rafmagni, hitaveitu og ljósleiðara.
Útihús á bæjarhlaðinu eru að mestu notuð sem geymslur og búið að leggja hitaveitu, 3-fasa rafmagn og ídráttarrör fyrir ljósleiðara. Aðaltafla íbúðarhússins er nýleg og með tengingu fyrir varaafl frá ljósavél sem stendur í útihúsi. Ræktað land er talið um 40ha. Veiðihlunnindi og vatnsréttindi fylgja jörðinni í Gilkotslæk, Svartá og Mælifellsá. Þekktar volgrur eru innan merkja, en ekki verið rannsakaðar m.t.t nýtingar.
Krækiberja- og bláberjaland er á jörðinni og um 3ha dafnandi birkiskógur sem hefur vaxið úr fornu rótarkerfi, eftir friðun frá sauðfjárbeit um 1990. Kartöflur hafa verið ræktaðar til heimabrúks í áraraðir og ágæt kartöflugeymsla með forstofu sem er grafin inn í bæjarhólinn, hlaðin/steypt um eða fyrir 1950.
Bæjarstæðið tengist Skagajarðarvegi 752, heimreið er um 500m með bundnu slitlagi .
Gilkotslækur rennur norðanvert, Svartá að austan og Mælifellsá rennur um jörðina að sunnan.
Svartá er vinsæl urriðaveiðiá, sem hefur verið í uppbyggingu frá því 2008. (Veiðifélag er um Svartá ofan Reykjafoss, með óskipt eigið fé til arðgreiðslu um 7 millj. skv uppl. frá aðalfundi 2025)
Af bæjarhlaðinu er víðsýnt og almennt talið fallegt útsýni.
Merkjalýsing fylgjandi afstöðumyndum frá 2005 er svohljóðandi:
Girðing að vestan frá miðju Efribyggðarvegar(1) að sunnan, um brotpunkta(2,3,4) að Hornmarki/staur(5) að norðan.
Að norðan liggja merkin frá Hornmarki/staur (5),með girðingu um Merkjavörður(6) og áfram með girðingunni að brotpunkti girðingar(7) og í sömu stefnu í miðjan Stokkinn(8). Þaðan í farvegum Gilkotslækjar ((farvegur samkvæmt loftmyndum Loftmynda ehf frá ágúst 2000, á afstöðumynd S-01 með þingl.nr. 1391/2005) að miðlínupunkti(9) í Skagafjarðarvegi 752. Eftir miðlínu þjóðvegarins að sjónmiði við merkjagirðingar milli Nautabús og Fitja(10). Frá miðlínupunktinum til austurs í merkjagirðingu(11,12,13,14,15,16)í miðjan farveg Svartár(17) (farvegur samkvæmt loftmyndum Loftmynda ehf frá ágúst 2000, á afstöðumynd S-01 með þingl.nr. 1391/2005)
Frá miðlínupunkti Svartár(17) til suðurs í miðjum farvegi í ágúst 2000 að sjónmiði við merkjagirðingu móti Hvíteyrum(18).
Þaðan til vesturs eftir merkjagirðingu(19) og að hornmerki við Mælifellsrétt-L224323 og áfram til vesturs í miðjan gamla þjóðveginn(20). Þaðan til norðurs eftir miðlínu gamla þjóðvegarins í miðju gömlu Mælifellsárbrúarinnar(21).
Frá miðpunkti brúarinnar(21), eftir miðri brúnni til norðurs að brúarenda, þaðan í girðingu við norð-vesturhorn brúarinnar og með girðingunni áfram í sjónmið á miðjan Efribyggðarveg(22).
Þaðan í miðlínu vegarins til vestur í upphafspunkt(1).
(Svartá hefur fært sig á tveimur stöðum frá staðfestingu merkja 2005 og liggur land jarðarinnar á þessum stöðum nú beggja vegna ár.)
Gluggar endurnýjaðir 2012.
Gólf efri hæðar endurgerð og einangruð 2005.
Neðri hæð endurbyggð 2004 sem sér íbúð.
Nýr 3-fasa rafstrengur lagður heim á bæ 2006. Rafkerfi yfirfarið. Sett ný stór tafla í vélaskemmuna 2007. Rofi fyrir varaafl. Ljósavél staðsett í kjallara "gamla fjóssins"
Hitaveita lögð heim á bæ 2007, nýtt hitakerfi 2008, snúin hringrás með varmaskipti.
Neysluvatnsheimtaug endurnýjuð 2000. Uppspretta "Maríulind" 0,6m plastbrunnur um 400m ofan við bæ. Forðabúr Sæplast tankur ca. 5000l.
Rör lögð inn fyrir vegg neðri hæðar fyrir hita, neysluvatn og ljósleiðara. Ótengt.
10kw diesel rafstöð fyrir varaafl í kjallara, tengd skiptirofa í aðaltöflu í vélageymslu 110101.
© Nautabú ehf.